Report · 27.05.2017

Sprengisandslína

Þetta er sjálfvirk uppskrift úr upprunalegu skýrslunni; sumt efni (myndir, töflur) er aðeins í PDF-skjalinu. The original is available as a PDF, from the full archive.

Skúli Jóhannsson, Mbl 27.05.2017 Sprengisandslína Tilgangur Sprengisandslínu er að bæta raforkukerfi landsins, auka flutningsgetu þess, öryggi raforkuafhendingar og gæði raforku. Í kerfisáætlunum Landsnets er lítið fjallað um stofnkostnað einstakra framkvæmda. Þó er nefnt í skýrslu Landsnets frá febrúar 2015 „Lagning jarðstrengja á hærri spennum í raforkuflutningskerfinu“ að kostnaður við 220 kV loftlínu yfir Sprengisand sé áætlaður 4086 MISK eða 36,5 MUSD miðað við gengi 112 ISK/USD. Forsendur Sprengisandslínu um 6% reiknivexti, 30 ára líftíma, árlegan rekstrar- og viðhaldskostnað sem nemur 2,5% af stofnkostnaði og orkugetu 170 GWh/ári leiða til kostnaðarverðs raforku upp á 21 USD/MWh. Þá á eftir að taka tillit til og meta aðra jákvæða þætti fyrir flutningskerfið, en einnig neikvæð umhverfisáhrif. Það kann að hljóma undarlega að flutningslína fái orkugetu, en með orkugetu Sprengisandslínu er átt við þá aukningu í markaði sem landskerfið gæti annað með tilkomu línunnar. Nefndur líftími er notaður við arðsemismat en með sæmilegu viðhaldi gæti raunverulegur líftími hæglega orðið tvöfalt lengri. Til samanburðar er kostnaðarverð raforku frá vatnsafls- og jarðvarmavirkjunum 40 USD/MWh. Sem orkuaukandi aðgerð í raforkukerfinu er Sprengisandslína þess vegna mjög hagkvæm framkvæmd. Í ljósi þess ættu orkufyrirtækin og samtök náttúruverndar að sjá sóma sinn í því að taka höndum saman um að Sprengisandslína verði að raunveruleika og þá haganlega komið fyrir í landslagi þannig að vel fari. Sjálfsagt væri að leggja heils árs akveg meðfram línunni til að opna víðerni hálendisins fyrir ferðafólki. Sprengisandslína Skúli Jóhannsson Höfundur er verkfræðingur skuli@veldi.is