Sagt hefur það verið um Suðurnesja-Línu
Sagt hefur það verið um Suðurnesja-Línu Suðurnesjalínur hafa verið í hönnunarferli í meira en áratug og með miklum tilkostnaði. Loksins hefur komið fram kostnaðaráætlun um framkvæmdina. Í upphafi skýrslu Landsnets frá okt 2016 "Suðurnesjalína 2, Valkostaskýrsla. Fyrri hluti – Samantekt“ segir að: "Suðurnesjalína 1, sem nú þjónar [Suðurnesjum] og rekin er á 132 kV spennu, er fulllestuð í dag jafnframt því sem öryggi kerfisins er ófullnægjandi þar sem aðeins er um þessa einu tengingu að ræða frá Reykjanesskaganum við 220 kV meginflutningskerfi Landsnets.“ Þetta er villandi framsetning. Í skýrslunni er ekki útskýrt að á næstu vikum mun United Silicon kísilverið setja í gang fyrsta vinnsluofninn 35 MW og mun þá álagið á Suðurnesjalínu 1 minnka sem því nemur.
Á meðfylgjandi línuriti er sýndur flutningur um Suðurnesjalínu fram til ársins 2050. Línuritið er byggt á gögnum og reikniaðferðum í skýrslu Landsnets og gert er ráð fyrir eftirfarandi forsendum:
Framleiðsla á Suðurnesjum. Árið 2000: 175 MW. Árið 2050: 600 MW
Álag á Suðurnesjum.
Árið 2000: 110 MW. Árið 2050: 475 MW
Gert er ráð fyrir að flutningsgeta Suðurnesjalínu sé 150 MW bæði inn og út af Suðurnesjum Á línuritinu er framleiðsla og álag látið hækka um ákveðna prósentutölu á hverju ári. Vonandi skýrir línuritið sig sjálf, en samkvæmt því er ekki þörf fyrir aukna flutningsgetu hvorki inn til Suðurnesja né út frá Suðurnesjum fram til 2050. Reiðuafl er varaafl á Suðurnesjum, sem þarf að vera tiltækt án fyrirvara, t.d. við bilanir. Í skýrslunni og á línuritinu er gert ráð fyrir 100 MW reiðuafli á Suðurnesjum. Þetta er kannski í hærra lagi, en það skagar upp í núverandi reiðuaflskröfur fyrir allt Landsnetið. Af línuritinu má álykta að það er óþarfi að reisa nýja Suðurnesjalínu á næstu árum. Það liggur bara ekkert á. Þegar starfrækslu núverandi línu lýkur, t.d. vegna efnislegrar hrörnunar, mætti færa flutningana í jörð og samsíða Keflavíkurveginum, en þá hafi vegurinn verið tvöfaldaður alla leiðina. 02.11.2016 Skúli Jóhannsson verkfræðingur