Report · 12.09.2017

Orkugeta Hvalárvirkjunar 2

Þetta er sjálfvirk uppskrift úr upprunalegu skýrslunni; sumt efni (myndir, töflur) er aðeins í PDF-skjalinu. The original is available as a PDF, from the full archive.

12.9.2017 Skúli Jóhannsson skuli@veldi.is www.veldi.is

Orkugeta Hvalárvirkjunar 2

Þessi greinargerð er í framhaldi af fyrri greinargerð ‘Orkugeta Hvalárvirkjunar, 8.9.2017‘.

Nokkrar forsendur og þar af leiðandi niðurstöður hafa breyst lítillega:

1. Hvalárlón og Eyvindarlón hafa nú sameiginlegt rúmmál og sömu vatnsstöðu eins og sýnt er á mynd 1. Samanlagt miðlunarrými þessarra tveggja miðlana er 44+32=76 Gl.

Mynd 1. Kerfismynd Hvalárvirkjunar

2. Vatnshæð í Hvalárvirkjun er nú breytileg með vatnshæð og og er mismunur á hæstu og lægstu lónstöðu 30 metrar. Þetta hefur áhrif á orkustuðul, sem er gefinn upp í GWh/GL og er háður fallhæð virkjunar. Má nú lýsa orkustuðli fyrir Hvalárvirkjun með eftirfarandi jöfnu: G = 0,687 + 0,006 * V 0,57 þar sem V er samanlagt innihald í Hvítárlóni og Eyvindarlóni, gefið upp í GL eða Gígalítrum.

3. Til að halda fallhæð Hvalárvirkjunar sem hæstu í rekstri þá var brugðið á það ráð í rekstrarhermun að senda vatn úr Vatnalautalóni til Hvalárslóns hvenær sem færi gefst og pláss er fyrir hendi. Dreifing innihalds vatnsmiðlana er sýnd á mynd 2 á næstu síðu.

4. Orkugeta kerfisins á mynd er nú 335 GWh/ári en var í áðurnefndri greinargerð 318 GWh/ári og hefur því hækkað um 17 GWh/ári.

Mynd 2. Dreifing innihalds vatnsmiðlana. 2