Report · 01.02.2002

Hermilíkanið

Þetta er sjálfvirk uppskrift úr upprunalegu skýrslunni; sumt efni (myndir, töflur) er aðeins í PDF-skjalinu. The original is available as a PDF, from the full archive.

Hermilíkanið eftir Þröst J Karlsson Ort um skýslu Annars veldis ehf 01.02.2002 “Nýtt hermilíkan fyrir orkukerfi Landsvirkjunar“ Má vera Ópera 1. (samvinnuverkefni við Annað veldi - seint að kveldi-) 2. Annað veldi fegið vildi takast á við vatnsgildi Og rekstur kerfis um allt land Og sérstaka landshluta þar í bland 3. Rætt var um það Á kínverkum stað Að koma hugmyndinni á sögulegt blað 4. og skoða í leiðinni landshluta þrjá var þessu varpað á stóran skjá 5. Markmið það með líkanssmíði þessu var að fyrirbyggja að allt færi í klessu vegna veðurofsa og staðarhátta og annarra þátta 6. Möguleikar umfram það sem áður var Að nú er hægt að hafa flöskustúta hér og þar, Jafnvel bar en guð má vita hvar nú verður hægt að reikna Og línurit teikna bestunarhluta og staðlaðan búnað allt flokkast þetta undir trúnað enn sem komið er eða alveg fram í september þegar öðru dæmi fer að ljúka vandamálið við Kárahnjúka 7. Niðurstaða: skal nú láta sannleik vaða enda er komin niðurstaða 8. Hún er algjört æði

þessi aðferðafræði ef hún er rétt stillt fer hún eigi vegavillt og væntingar betri að liðnum næsta vetri gefur hið nýja gerfi umfram hið úrelda kerfi því hermilíkanið má fínstilla svo engin verði villa 9. Þetta minnir máske á sápulöður en gefur samt merkar niðurstöður svo æðislega fjölþættar enda er hermirinn heldri ættar 10. Kannski það gerir seinna kleift að geta fjöllin hreyft vatnselg frá bæjum einnig bægt sem áður fyrr var ekki hægt 11. Ekki má gleyma Austurlínu ávallt veldur hún höfuðpínu samt mun aukast reginmáttur um það fjallar næsti þáttur - Ef Kröfluvikjun verður stækkuð verð á orku verða hækkuð fólki finnst það illa svikið enda farið yfir rauða strikið en um þær mundir, þegar svo ber undir verður framleiðslan 560 gígavattstundir 12. Leysist brátt úr læðing raforkunnar markaðsvæðing 13. Stofnað verður Íslandsnet punktur is einskis verður þá farið á mis þrátt fyrir ys og þys 14. Menn greinir sjálfsagt á eftir Hermisins framtíðarspá að vér íslendingar og aðrir vitleysingar verðum að ganga fram í mati þessu áður en allt fer í klessu 15. eftir aðskilnað Landsvirkjunar flutningsþátt sem leikið gæti framleiðsluna ansi grátt og kostað mig auga blátt eins og dæmin sanna enda hafður milli tanna

meðal misindismanna 16. Óvissuþáttur er þarna inni oss hann gæti rúið inn að skinni ættum ekki utan um oss fatalepp gætum þurft að fara á Klepp nema við lánsumsókn til Alþjóðabankans við sendum til að sporna við lausum endum sem nýtast kann vorum erkiféndum 17. Af þessu dökka hlið má einnig draga vér gætum endað úti í haga með galtóman maga eins og í gamla daga 18. Í fyrirbyggjandi frumvarpi um orkulög verður þessi orkuópera flutt á fiðlu og sög og starfsmannakór af þessum geira sem stofnaður verður og lætur í sér heyra jarðsyngur svo hið gamla líkan sem engan gerir ríkan eftir hartnær þrjátíu ár það tekur því varla að fella tár kerfið þarf að hluta niður það er staðreynd því miður 19. Prófanir hafa leitt í ljós með skýrum hætti að nú þarf að starfa af fullum mætti án tillits til þeirrar högunar sem verða að bíða dögunar 20. Ekki er úr vegi að allir verði gráhærðir þegar þeir fara að kynna sér ýmsar stærðir eins og sjá má í mynd hinni þriðju þeirri Örlagahryðju 21. Hermi hefur nú verið ítarlega lýst allar formúlur hann getur hýst ágætt er það útspil að geta skipt klabbinu niður í tímabil ekki getur það talist slæmt að líkanið er fullkonað og nákvæmt en ekki nein óhappakind þá skulum við líta á þriðju mynd 22. Má þar líta á virkjað rennsl enda ber hermirinn á það kennsl uppsett er virkjana öfluga afl sem hægt er að fá inn á gafl miðlanna stærð og aðra kosti sem ekki valda skammhlaupi né losti

Vér skulum leggja oss í líma að ljúka verkinu í tíma gera gjaldskrár og prútta ef þessu á ekki að slútta náum í stóriðju og orkusölu græðum með tólf stafa tölu

Ísland allt í vatni en það ætíð vikum fimm á hálendi opnast þá flóðgáttir

23. morar vorar síðar víðar

24. Tekið skal tillit til flutningstíma áður en sól fer í alvöru að kíma nú má enginn ráðherra hrína heldur dragi upp buddu sína

25. Eins og sést á fimmtu mynd kemur gróðinn úr tærri lind nýjungar voru svo teknar inn hljóp þá öllum kapp í kinn

26. Vatnsgildin skrifuð upp á nýtt sem þróaðist meðfram ótt og títt voru þá nýjungar teknar inn formúlum gæddar og saman reknar

27. Hermirinn notaði ess dé ell ell frá Frontline Systems og þessháttar skell og aftur plúsar tveir og kerfishlutar áfram keyr þrír voru þeir og miklu meir

28. Álag á kerfin hvert fyrir sig færir dæmið á annað stig samkvæmt heildarhermi á fimmtu mynd ég beint í þriðju grein mér vind þar sem greinir hér að framan þá smellur þetta saman Lij mínus og Lij plús eru þegar orðin dús útreikning fyrri nú skal hætt enda mál það útrætt Álag skal nú endurkvarða fyrir þá sem málin varða fara skal á fyrra svið það er að segja í fyrsta lið

29. Prófanir á því voru gerðar hvað flöskuhálsar og klofnar herðar

eftir hrun Kárahnjúka sem Norðmenn ætla frá að strjúka sem viðbótarafli við góðan díl betra er að semja við krókódíl kannske er eitthvað sem ekki stenst máske það með tímanum venst 30. Bestanir 3432 hermilíkanið fær nú má hafa úti allar klær og jafnvel tær með vatnsgildistema fimmtíu og fjórum verður að segja upp nokkrum forstjórum Það verður að teljast viðunandi í hinu kalda landi ef ítrað er sinnum sex eftir suð og pex þriggja kerfishluta þrisvar sinnum telst það til höfuðs þessum skinnum 31. (prófanir og niðurstöður) Nú skal að öllu gá hvernig hún endar raforkuspá Gígavattstundir 13789 fyrir árið 2010 Kárahnjúkadæmið er þá búið enda öfugsnúið seðlabankans veski rúið um tvö þúsund milljónir króna sem runnu til okrara og og flóna 32. Afgangsorka er nú næg en þróun flöskuhálsa er of hæg vatnsbúskapur er í lagi til eru snillingar í því fagi 33. Skal nú skoðast arðsemismat hugsum okkur vaskafat með viðbótarpúi frá gömlu Kröflu eins og sýnt er í þriðju töflu 34. Í fjórðu töflu er það sýnt að verkefni þetta er afar brýnt þar sem kerfin eitt til fjögur gefa fyrirheit ansi fögur um orku milli kerfishluta tækifærinu má ei glutra verst þar vantar Suðurland sem inni þyrfti að koma í bland því alltaf er þörf á aukaafli hvar verður oná í þessu tafli Þetta er kappsmál og lítill vandi að beisla orku í voru landi. *******