Report · 11.09.2018

Fundur Sjálfstæðismana um Þriðja orkupakkann

Þetta er sjálfvirk uppskrift úr upprunalegu skýrslunni; sumt efni (myndir, töflur) er aðeins í PDF-skjalinu. The original is available as a PDF, from the full archive.

Sent til Mbl.is: 1.9.2018 Birt í Mbl: 11.9.2018 Skúli Jóhannsson Email: skuli@veldi.is Website: www.veldi.is Fundur sjálfstæðismanna um Þriðja orkupakkann Fundur sjálfstæðismanna um Þriðja orkupakkann fimmtudaginn 30.08.2018 var athyglisverður, sérstaklega að því leyti að ekki kom fram ein einasta jákvæð setning í garð pakkans. Hins vegar vantaði ekki neikvæðnina og menn höfðu fjörugt ímyndunarafl um skelfilegar afleiðingar ef pakkinn væri samþykktur. Hróp og köll komu frá framsögumönnum við góðar undirtektir áheyrenda. Sum framsöguerindin, sérstaklega hjá sérfræðingunum, voru óskiljanleg jafnvel fyrir vana menn. Allt var þetta á einn veg: allir skulu vera á móti, þar á meðal þingmenn flokksins, annars fái þeir fyrir ferðina. Þetta minnti mann á heiftúðuga trúarsamkomu í Bandaríkjunum. Á fundinum komu fram nokkur atriði sem vöktu undrun. Eitt var að það væri stórhættulegt að skilgreina rafmagn sem vöru, en sú skilgreining hefur almennt verið viðurkennd um allan heim í viðskiptum. Ég bara á ekki orð. Annað var að Landsvirkjun skuli fá kjölfestuhlutverk við að tryggja landsmönnum orkuöryggi, í stað þess að notast við hinn frjálsa raforkumarkað, eins og tíðkast í öllum löndum sem við berum okkur saman við. Og svo kom margt annað fáránlegt fram í þessum dúr, sem óþarfi er að tíunda. Ég öfunda ekki flokksforystu Sjálfstæðisflokksins að þurfa að ná tökum á ástandinu eftir að búið er að kljúfa flokkinn í herðar niður, með vaskri framgöngu nokkurra tæknimanna innan flokksins. Það er áhyggjuefni að með því að hafna Þriðja orkupakkanum skuli stefnt að „harðlínu sósíalisma“ í raforkumálum. Þá munu kumpánar ríkisvaldsins í einu og öllu halda áfram að ráðskast með stefnumótun og ákvarðanir í raforkumálum og jafnframt ríghalda í gjaldskrárkerfin gömlu. Þá munu líklega verða teknar ákvarðanir sem augljóslega væru óskynsamlegar og jafnt og þétt horfið frá því sem best hefur reynst erlendis og mundi henta vel á Íslandi. Í nafni hugmyndafræði sem hvergi hefur gengið upp. Ég held að hugmyndir um sæstrenginn IceLink frá Íslandi til Bretlands og tilheyrandi styrking á flutningskerfinu flæki bara málið á þessu stigi, sérstaklega í málflutningi lögfræðinga, en þeir ráða alls ekki við þennan þátt málsins. Einnig flækir umfjöllunina um IceLink sú staðreynd að ennþá liggur ekki fyrir hönnun með teikningum og tilheyrandi kostnaðaráætlun, en á meðan svo er þá er lítið hægt að gera. Það þarf að skoða miklu betur áhættuna við að þvera úthaf eða Atlantshafið í fyrsta sinn með 1100 km löngum raforkusæstreng á allt að 1100 metra dýpi. Það þarf að skoða vel nýlegar bilanir á löngum köplum svo sem á Basslink strengnum árið 2016, sem varð á 80 metra dýpi milli Tasmaníu og Ástralíu, en viðgerð tók 6 mánuði. Það þarf varla að gera ráð fyrir að IceLink komi nokkurn tíma, alla vega ekki fyrr en ef til vill í fjarlægðri framtíð og þá kannski sem hluti af fjölþjóðlegum kapli sem næði um Evrópu-ÍslandGrænland-Kanada. Eða þá að ný tækni í raforkuöflun verði komin til sögunnar t.d. með umhverfisvænni nýtingu á kjarnorku, sem gæti verið á næsta leiti. Við skulum bara hugsa Þriðja orkupakkann sem hluta af lagalegri umgjörð fyrir raforkukerfið án sæstrengs. Það er svo sannarlega þörf á aðferðafræðinni.

Bagalegt er að aðal þátttakendurnir í málefnum Þriðja orkupakkans, þ.e. Landsvirkjun og Landsnet, hafa lítið sem ekkert tjáð sig, utan einnar greinar eftir Rögnu Árnadóttur aðstoðarforstjóra Landsvirkjunar í vefriti Úlfljóts félags laganema í Háskóla Íslands. Það vefrit lesa fáir. Ekki hefur komið fram hvort viðhorfin í greininni eru viðhorf Landsvirkjunar eða persónuleg skoðun Rögnu. Er það hugsanlegt að Landsvirkjun og Landsnet telji að þau eigi ekki tjá sig vegna þess að þau eru í opinberri eigu? Það væri þá ekki í samræmi við anda raforkulaganna frá 2003, en með þeim var hugmyndin að minnka áhrif stjórnmála- og embættismanna á starfsemi fyrirtækjanna. Ég er þeirrar skoðunar að samþykkja eigi Þriðja orkupakkann á Alþingi.